Bílaumboðið Ræsir mun hætta starfsemi á næstu dögum eða vikum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Ræsir var stofnaður árið 1942 og var með umboð Mercedes-Benz á Íslandi um áratuga skeið til ársins 2005 þegar Askja tók við umboðinu. Askja og Kia á Íslandi flytja í húsnæði Ræsis á Krókhálsi 11.