Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu í nótt

mbl.is/Július

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um fjögur innbrot í fyrirtæki í nótt.  Að sögn lögreglu var brotist inn á Little Caesars pizzustað í Ögurhvarfi, Hlöllabáta á Smiðjuvegi, KFC í Bæjarlind og Bónusvídeó í Hafnarfirði.

Að sögn lögreglu var einhverjum fjármunum stolið á öllum stöðum en ekki liggur fyrir hversu miklu að svo stöddu.  Málið er í rannsókn.

Ekki er útilokað að málin tengist að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert