Jarðskjálftar á Reykjanesi

Nokkrir jarðskjálftar urðu á Reykjanesi í gærkvöldi og í nótt, og mældust þeir allt að 2 á Richter. 

Á vef Veðurstofunnar kemur fram að þrír skjálftar urðu vestur af Krísuvík á Reykjanesi á öðrum tímanum í nótt, sá stærsti 1,9 á Richter og hinir tveir 1,8 á Richter. Laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi varð skjálfti í Helguvík, sem mældist 1,8 á Richter. 

Þá urðu tveir skjálftar um fjögurleytið í gærdag vestur af Krísuvík og mældust þeir 1,9 á Richter.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert