Tilkynnt var um árekstur og bílveltu á Reykjanesbraut við gatnamót Grindavíkurvegar um sex leytið í morgun. Lögregla, sjúkrabifreið og tækjabifreið frá Brunavörnum Suðurnesja fóru á staðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum rákust jeppabifreið og fólksbifreið sem komu úr gagnstæðum áttum á og voru ökumenn einir á ferð.
Ökumenn voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en meiðsli þeirra eru talin minniháttar. Bifreiðarnar voru óökufærar og fluttar með dráttarbifreið.
Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Vatnsnesvegar í Keflavík. Engin slys urðu á fólki en bifreiðarnar voru ökufærar eftir áreksturinn.