Skotið á hús í Keflavík

Skotið var með loftbyssu í rúðu íbúðarhúss við Faxabraut í Keflavík í nótt. Tilkynnt var um þetta til lögreglunnar á Suðurnesjum klukkan 01:47 en íbúar sáu þann sem mundaði skotvopnið og gáfu nokkuð greinargóða lýsingu á því ökutæki er hann fór í ásamt tveimur öðrum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafðist ekki upp á þeim í nótt en eru þeir sem þarna voru að verki eru hvattir til að koma á lögreglustöðina.

Dagskrá Sandgerðisdaga fór vel fram í gærkvöldi,  en lögreglan hafði afskipti af þremur ölvuðum unglingum og var þeim komið í hendur foreldra sinna.

Tveir gista fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ölvunar og óspekta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert