Það er ekki að sjá að haustið sé í nánd. Þessi hressu börn frá Hellissandi létu sig ekki muna um að skella sér í sjóinn í Skarðsvík, þótt lofthitinn hafi verið 15 gráður og sjávarhitinn ekki nema 5 gráður. Þrátt fyrir það skemmtu börnin sér vel undir vökulum augum foreldra og nutu útiverunnar.