Hvalárvirkjun ekki svarið

Stjórn Framtíðarlandsins sendir frá sér eftirfarandi ályktun er varðar tillögur að Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði.

Vestfirðingar búa við mesta óöryggi raforkuflutninga hér á landi og hafa heimili og fyrirtæki mátt þola þann skort mun lengur en lög gera ráð fyrir.  Félagið fagnar öllum úrbótum er hleypa frekari stoðum undir sjálfbærra og samkeppnishæfara samfélag í fjórðungnum. Það er þó mat stjórnar að bygging Hvalárvirkjunar muni litlu breyta um það ástand sem ríkir á Vestfjörðum við raforkuflutning.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti eru það flutningslínur á svæðinu sem þarf helst að endurnýja svo rekstrar öryggi raforku verði tryggt. Einnig má telja að skynsamlegra væri að leita frekari húshitunar kosta í jarðavarma, þar sem stór hluti húshitunar er fenginn með raforku, þannig mætti létta miklu álagi af raforkukerfinu og endurheimta orku fyrir nýja notendur.

Sjá fyrirlestur sem fluttur var á málþingi FSV á Bíldudal 2007 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert