Litlu mátti muna á föstudag þegar ökumaður vörubíls varð að beygja út í vegrið á einbreiðri brú í Langadal í Ísafjarðardjúpi til að forðast slys en jeppi, sem kom á ógnarhraða á móti, fór yfir brúna samtímis og vörubíllinn.
Vegurinn í Langadal lokaðist á meðan verið var að koma vörubílnum af brúnni. Engan sakaði í þessu umferðaróhappi en lögreglan vill beina þeim tilmælum til vegfarenda að sýna aðgát þegar þeir nálgast einbreiðar brýr.