Guðni Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagðist lýsa fullri ábyrgð á hendur Sjálfstæðisflokksins á því hvernig komið væri í efnahagsmálum.
„Ég þekki ekki Sjálfstæðisflokkinn fyrir þann flokk, sem ég vann með. Þá þorði hann að takast á við málefni en nú minnir hann á risa, sem hefur kastað frá sér vopnum og klæðum og er kominn með merarhjarta," sagði Guðni.