Lét greipar sópa í skartgripabúð

Karlmaður kom inn í skartgripaverslun við Laugaveg í Reykjavík laust eftir hádegi í dag, opnaði skúffu í versluninni og lét þar greipar sópa. Hann komst undan með eitthvað af skartgripum.

Að sögn lögreglu ógnaði maðurinn engum í búðinni heldur gekk að skúffunni og tók skartgripina og fór út. Mannsins var leitað nú síðdegis en lögreglu mun gruna hver var þarna að verki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert