Réðust á mann með golfkylfum

Tveir karlmenn vopnaðir golfkylfum brutust inn í íbúð við Fjarðarstræti á Ísafirði í gærkvöldi í þeim tilgangi að ganga í skrokk á pólskum manni sem þar býr. Maðurinn komst undan árásarmönnunum og þeir sjálfir komust af vettvangi áður en lögregla kom á svæðið.

Lögreglan á Vestfjörðum vildi ekkert tjá sig um málið á meðan það væri í rannsókn. Samkvæmt heimildum bb.is mun annar árásarmannanna hafi verið handtekinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert