Slasaðist þegar flutningabíll og dráttarbifreið rákust saman

Ökumaður dráttabifreiðar slasaðist þegar flutningabíll, sem reyndi framúrakstur, rakst á hana við Gufuá norðan við Borgarnes um sexleytið í kvöld. Ökumaðurinn var fluttur á heilsugæsluna í Borgarnesi til aðhlynningar. Bæði ökutækin enduðu utan vegar.

Að sögn lögreglu var ökumaður dráttarbifreiðarinnar að beygja til vinstri þegar slysið varð, en ökumaður flutningabifreiðarinnar reyndi að taka fram úr dráttarbifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum.

Bæði ökutækin skemmdust talsvert. Ökumaður dráttarbifreiðarinnar er ekki sagður vera alvarlega slasaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert