Engan sakaði þegar tveir bílar rákust saman við bæinn Hlíð í Lóni, sem er skammt frá Hvalnesi, um hádegisbil í dag. Að sögn lögreglu eru bílarnir hins vegar óökufærir eftir áreksturinn.
Fjórir voru í annarri bifreiðinni og ökumaðurinn var einn í hinni. Að sögn lögreglu var önnur bifreiðin að beygja þegar bílarnir rákust saman, en bifreiðin var fyrir aftan hana reyndi að taka fram úr með fyrrgreindum afleiðingum.