Þrír í tveggja vikna farbann

Þrír útlendingar hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna farbann vegna kæra um peningasvindl í verslunum og bönkum. Þeir komu til landsins á mánudagskvöld og þegar upplýsingar bárust um aðferðir þeirra daginn eftir var ábendingu komið á framfæri við afgreiðslufólk. Stuttu síðar fundust mennirnir í Borgarnesi og voru handteknir í kjölfar þess.

Mál þeirra eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa nú verið úrskurðaðir í tveggja vikna farbann að hennar kröfu.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert