Hitti ekki á veginn

Ölvaður maður ók afturenda bifreiðar sinnar út af veginum við Drottningarplan, efst í Kömbunum á Suðurlandsvegi, síðdegis í gær.

Maðurinn sefur enn úr í fangageymslum lögreglunnar og mun verða tekinn fyrir þegar hann vaknar.

Málsatvik eru óljós en þegar lögreglan á Selfossi kom á staðinn sagði hann henni að hann hefði ekki hitt á veginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert