Búið er að veiða 37 hrefnur af 40 dýra kvóta, sem gefinn var út fyrr á þessu ári.
Hrefnuveiðibáturinn Njörður KÓ hefur verið að veiðum í Faxaflóa síðustu daga og kom með þrjú dýr í land á miðvikudag og tvö í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Félagi hrefnuveiðimanna er stefnt að því að klára kvótann í september, en heimilt er að veiða út árið 2008.