Keyrði yfir hringtorg og hljóp svo burt

Ökumaður fólksbíls keyrði yfir upphlaðið hringtorg á mótum Bæjarháls og Tunguháls í Árbæjarhverfi um þrjú leytið í nótt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og forðaði hann sér á hlaupum áður en lögregla kom á staðinn.

Bílnum hefur verið hratt ekið því tólf metra bremsuför mældust áður en að hann ók upp í hleðsluna og kastaðist svo yfir hana.

Bifreiðin hefur ekki verið tilkynnt sem stolin og mun vera rætt við eiganda hennar síðar í dag.

Bifreiðin er gerónýt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert