Kjörnir skoðunarmenn reikninga Fjórðungssambands Vestfjarða, þeir Guðmundur Björgmundsson og Ólafur B. Halldórsson, eru ekki ánægðir með greinargerðir sumra þeirra, sem selja sambandinu þjónustu sína háu verði.
Í áritun skoðunarmannanna á reikningum sambandsins eru gerðar nokkrar athugasemdir en þeir leggja þó til að reikningarnir verði samþykktir.
Umsögn skoðunarmannanna er á þessa leið:
„Undirritaðir
hafa lokið endurskoðun bókhalds Fjórðungssambands Vestfirðinga. Góð
regla er á öllum fylgiskjölum og skilmerkilega gerð grein fyrir
útlögðum kostnaði. Það sem undirrituðum þykir ábótavant eru
greinargerðir þeirra aðila sem selja sambandinu þjónustu sína á háu
verði. Er hér um að ræða ýmsa sérfræði- og ráðgjafaþjónustu. Vera kann
að þessir aðilar hafi gert forystumönnum Fjórðungssambandsins nánari
grein fyrir verkum sínum en reikningar þeirra bera það ekki með sér.
Flestir þessir reikningar varða staðarval olíuhreinsistöðvar.
Ósundurliður reikningur „auglýsingakostnaður“ fyrir 240.000 frá
ráðgjafafyrirtæki er að okkar mati ófullnægjandi. Ýmis
ráðgjafafyrirtæki gera reikninga fyrir hundruð þúsunda án þess að gera
neina grein fyrir tímafjölda sem í þjónustuna er lögð. Lögmannsstofa
ein tilgreinir þó að klukkustundar vinna kosti um 18.000 kr. með
virðisaukaskatti og rúmlega dagsverk kosti því um kvart milljón. Það
vekur athygli að þetta er áþekkt tímakaup og Landhelgisgæslan tekur
fyrir dýptarmælingar þar sem að líkindum er verið að leggja til skip í
mælingarnar. Reikningar hótela í Reykjavík mættu gjarnan vera útgefnir
á íslensku til íslenskra viðskiptavina.
Undantekning til
fyrirmyndar er Náttúrustofa Vestfjarða þar sem skilmerkilega er gerð
grein fyrir vinnustundum með dagsetningum og taxta útseldrar vinnu er
að mati undirritaðra stillt í hóf. Við teljum að gera eigi þá kröfu til
þeirra aðila sem titla sig sérfræðinga og ráðgjafa að þeir geri
skilmerkilega grein fyrir hvað þeir eru að vinna, hvenær og hver sé
þeirra úrseldi vinnutaxti.“