Mikið annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í gærkvöld og nótt vegna ölvunar og óspekta í miðbæ Reykjanesbæjar. Talsvert var um slagsmál og pústra, en engin er alvarlega slasaður eftir átök næturinnar. Fjórir gista fangageymslur lögreglunnar vegna slagsmála og bíða yfirheyrslu.