Einn var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær því tæpar 14,4 milljónir króna en fyrsti vinningur var þrefaldur. Vinningsmiðinn var keyptur í Salagrilli í Kópavogi. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fá þeir 315 þúsund krónur hvor.
Lottótölur voru 24, 28, 31, 35 og 36 og bónustalan var 3. Jókertölurnar voru 9 - 0 - 3 - 0 - 7.