Brotist var inn í Flensborgarskóla og Álftanesskóla í nótt, auk þess sem brotist var inn í fyrirtæki í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu var m.a. tölvuskjám stolið. Talið er að málin tengist.
Tveimur tölvuskjám var stolið úr fyrirtækinu og einnig úr Flensborgarskóla. Ekki er vitað hverju var stolið úr Álftanesskóla.