Að sögn lögreglu var sjúkratösku miðborgarvarðar stolið í nótt, en maðurinn var að hlúa að vegfaranda sem hafði skorið sig á hendi við Lækjargötu rétt fyrir kl. sjö í morgun. Hann lagði töskuna við hliðina á sér og stuttu síðar var taskan horfin.
Að sögn lögreglu er um gráan og svartan bakpoka að ræða, sem er með þremur stórum hólfum. Lögreglan biður þá sem hafa séð töskuna að láta lögreglu vita í síma 444-1100.