Sala áfengis hjá ÁTVR jókst um 4,1% fyrstu 8 mánuði ársins, miðað við sömu mánuði í fyrra.
Viðskiptamenn ÁTVR greiddu 11,3 milljarða króna fyrir áfengið.
Alls voru seldir rúmlega 13,5 milljón lítrar af áfengi í vínbúðunum, þar af rúmlega 10,6 milljón lítrar af bjór. Bjór er 78% af seldu áfengi í lítum talið.