Konur eru 60% nýnema á háskólastigi á Íslandi, en meðaltal OECD landanna er 54%, að því er segir í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD, „Education at a Glance 2008, OECD Indicators".
Hlutfallslega stór hluti nýnema á háskólastigi hér á landi stundar nám í félagsvísindum, viðskiptafræðum, lögfræði og
þjónustu (40% nýnema) og í hugvísindum, listum og menntun (31%
nýnema). Konur eru mikill meirihluti nýnema á þessum sviðum og eins í
heilbrigðisgreinum. Nám í verkfræði- og
byggingagreinum stunda 9% nýnema en þar eru konur 33% nýnema. Aðeins í Danmörku er
hlutfall kvenna hærra í þessum greinum, eða 35%. Nýnemar í raunvísindum
og landbúnaði eru 6% nýnema. Þar eru konur 59% allra nýnema, sem er
næsthæsta hlutfall kvenna innan OECD. Í Portúgal eru konur 60% nýnema í
þessum greinum.
Á Íslandi er nettó útskriftarhlutfall í
háskólanámi það hæsta sem gerist í OECD löndunum. Nettó
útskriftarhlutfall fyrir fyrstu háskólagráðu úr fræðilegu háskólanámi
(stig 5A) á Íslandi er 62,8% en meðaltal OECD ríkja er 37,3%.
Útskriftarhlutfallið á Íslandi er 86,5% hjá konum og 40,2% hjá körlum.
Hvergi í OECD ríkjunum er meiri munur á útskriftarhlutfalli karla og
kvenna.
Umfjöllun Hagstofunnar um skýrslu OECD