Á víðáttum Íslands gekk nýi Golfinn í gegnum eldskírn: Þrjá daga af vatni, sandi, ís og endalausri möl, möl, möl. Þetta var mikil þolraun sem afhjúpaði vægðarlaus veikleikana.
Þannig hefst grein í þýska bílatímaritinu Auto Bild þar sem fjallað er um nýja kynslóð VW Golf en verið er að kynna þann bíl fyrir alþjóðlegum bílablaðamönnum hér á landi.
Ritstjóri blaðsins reynsluók bílnum hér og gefur honum góða umsögn; segir hann mun fremri fyrirrennurum sínum. Hann fjallar einnig á jákvæðan hátt um Ísland og segir það ákjósanlegan stað til slíkra bílakynninga.