Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftri Ivan Konovalenko, kt. 151076-2549, sem er grunaður um stórfellda líkamsárás sem átti sér stað í íbúð við Mánagötu í Reykjavík sl. sunnudag. Maðurinn er talinn hættulegur.
Þeir sem geta gefið vísbendingar eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.
Konovalenko er talinn hafa verið í hópi manna, sem réðist inn í íbúðina en þeirri heimsókn lauk með því að maður í íbúðinni var stunginn með hnífi. Tveir menn voru handteknir á sunnudag og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags en tveggja er enn leitað, þar á meðal Konovalenko.