Enn hefur ekkert komið í ljós hvað olli því að það drapst á báðum aðalvélum olíuskipsins Leoni Theresa í gærkvöldi með þeim afleiðingum að það strandaði í Sundunum á Ísafirði.
Engar skemmdir urðu á skipinu og
liggur það nú við Ísafjarðarhöfn og er verið að leita að orsök
bilunarinnar. Óljóst er því hvenær það siglir aftur frá Ísafirði. Það er hins vegar óskemmt.