Farið var inn í fimm bíla í Bolungarvík í nótt sem leið og hljómflutningstækjum og lauslegum verðmætum stolið. Lögreglan á Ísafirði biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband í síma 450 3730.
Lögreglan biður fólk einnig að hafa varann á sér og skilja ekki bíla eftir ólæsta eða með verðmæti sjáanleg í þeim.