Gögn sögð sýna samráð um uppsagnir

Frá fundi ljósmæðra í vikunni.
Frá fundi ljósmæðra í vikunni. mbl.is/Árni Sæberg

Fjár­málaráðuneytið tel­ur sig hafa und­ir hönd­um gögn, svo sem tölvu­pósta, sem sýni að ljós­mæður hafi verið hvatt­ar til upp­sagna. Gunn­ar Björns­son, skrif­stofu­stjóri starfs­manna­skrif­stofu fjár­málaráðuneyt­is­ins, sagði í frétt­um Útvarps, að eft­ir fé­lags­fund ljós­mæðra í júní hafi borist mörg upp­sagn­ar­bréf og greini­legt sé að tengsl séu þar á milli.

Guðlaug Ein­ars­dótt­ir, formaður Ljós­mæðrafé­lags­ins, sagði við mbl.is í gær­kvöldi, að megnið af upp­sögn­un­um komu í kjöl­far mik­ils hita­fund­ar í lok júní þar sem Gunn­ar Björns­son, sem einnig er  formaður samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins, var innt­ur eft­ir því hvort afstaða hans til krafna ljós­mæðra við launa­leiðrétt­ingu hefði breyst við að heyra kröf­urn­ar.

„Þá sagði hann að afstaða samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins hefði ekki breyst síðan 1962. Þar höf­um við loks­ins skýr­ingu á því hvað full­trú­ar fjár­málaráðuneyt­is­ins með eðli starfa en ekki mennt­un en það er það sem hann vill launa fyr­ir og það gild­is­mat er síðan 1962 og ef þetta ger­ir ekki hverja mann­eskju brjálaða sem held­ur virki­lega að öll kvenna- og jafn­rétt­is­bar­átta síðastliðin 50 ár hafi verið til ein­hvers, þá veit ég ekki hvað,"sagði Guðlaug.

Fjár­málaráðuneytið hef­ur  stefnt fé­lag­inu fyr­ir fé­lags­dóm og tel­ur upp­sagn­ir ljós­mæðra vera ólög­mæt­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert