Óku undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan í Borgarnesi handtók í dag tvo ökumenn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var tekinn rétt norðan við Borgarnes eftir að hann hafði ekið aftan á annan bíl en hinn náðist innanbæjar. 

Sá sem ók aftan á bílinn var m.a. með hass í blóðinu, skv. þvagprufu. Báðir eru mennirnir þekktir af fíkniefnabrotum og fleiru misjöfnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert