Sparisjóðsafgreiðslu lokað á Borðeyri

Borðeyri.
Borðeyri. Mynd/strandir.is.

Afgreiðslu Sparisjóðsins á Borðeyri verður lokað um næstu mánaðarmót, en afgreiðslan þar er hluti af starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík.

Fram kemur á vefnum Ströndum.is er lokun afgreiðslunnar á Borðeyri heimamönnum mikil vonbrigði enda hafi verið samfelldur rekstur sparisjóðs í Bæjarhreppi í rétt tæpa öld og alltaf sé erfitt þegar störfum fækkar.

Sparisjóður Hrútfirðinga tók fyrst til starfa 1910 og hafði höfuðstöðvar á Borðeyri frá 1976. Sjóðurinn sameinaðist Sparisjóði Vestur-Húnavatnssýslu árið 1998 undir nafninu Sparisjóður Húnaþings og Stranda og hafði hann afgreiðslu á Hvammstanga og Borðeyri. Sá sjóður sameinaðist síðan nýverið Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóði Vestfirðinga undir nafni Sparisjóðsins í Keflavík.

Strandir.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert