Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir er þeir brutust inn í fyrirtæki við Ármúla í Reykjavík í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Starfsmaður fyrirtækisins var við vinnu og tilkynnti lögreglunni um innbrotið, og lögreglumenn sem voru staddir skammt frá gripu hina óboðnu gesti áður en þeir náðu að láta greipar sópa.