Brot 128 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá þriðjudegi til föstudags í síðustu viku. Vöktuð voru 8.234 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,6%, of hratt eða yfir svokölluðum afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði.
Tólf óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.
Samkvæmt lögreglunni er þetta örlítið lægra brotahlutfall en við síðustu vöktun á þessum stað.
Meðalhraði hinna brotlegu er sömuleiðis lægri miðað við síðustu mælingu í Hvalfjarðargöngunum.