Til slagsmála kom eftir réttarball í Árnesi aðfaranótt laugardags með þeim afleiðingum að ungur maður var sleginn hnefahögg í andlitið svo tvær tennur brotnuðu.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru tveir menn handteknir, grunaðir um verknaðinn. Við yfirheyrslur viðurkenndu báðir að hafa slegið til mannsins en töldu hann hafa lagt sitt af mörkum með því að hefja átökin.