Tvítugur maður sem kom til landsins fyrir örfáum dögum, var um helgina staðinn að hnupli í verslunum Smáralindar. Andvirði varningsins var yfir tvö hundruð þúsund krónur. Maðurinn viðurkenndi brot sín hjá lögreglu og varningnum var skilað.
Frá þessu greinir í tilkynningu frá lögreglunni.Í kjölfar skýrslutöku var gefin út ákæra á hendur manninum og héraðsdómari gerði honum refsingu er nam eins mánaðar skilorðsbundnu fangelsi.