Lögreglan hefur handtekið þrjá menn sem rændu verslun Skólavörubúðarinnar á Smiðjuvegi í Kópavogi um kl. 15 í dag. Að sögn lögreglu voru mennirnir handteknir í heimahúsi í Breiðholti.
Mennirnir ógnuðu starfsfólki með dúkahníf sem var í versluninni, engan sakaði hins vegar.
Mennirnir, sem eru um tvítugt, hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. Þeir höfðu tölvu á brott með sér og telur lögregla að þeir hafi ætlað að nota þýfið í skiptum fyrir fíkniefni.
Lögreglan fékk greinagóða lýsingu á mönnunum sem leiddi til handtöku þeirra á fimmta tímanum.