Selur skotinn í íbúðahverfi

Þessi selur heldur sig fjarri mannabyggð og tengist því ekki …
Þessi selur heldur sig fjarri mannabyggð og tengist því ekki fréttinni. mbl.is/Rax

Maður á miðjum aldri er grunaður um að hafa skotið sel í Fjarðará inni í miðju Seyðisfjarðarkaupstað um miðjan dag í dag. Lögreglan á Egilsstöðum segir málið vera í rannsókn.

„Þetta er klárt brot á vopnalögum," sagði varðstjóri lögreglunnar. Hann bætti því við að selurinn sem ekki var hirtur af skotmanninum heldur skilinn eftir í ánni hafi verið brimill og stutt sé í íbúðarhverfi sem eru þarna allt í kring.

Málið er í rannsókn, vitni hafa gefið sig fram og lögreglan telur sig vita hver var þarna að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert