Aðstoðarbeiðnir eru nú að mestu hættar að berast suðvesturhorni landsins vegna óveðursins í nótt. Rétt eftir klukkan sex í morgun var hins vegar tilkynnt um fok á þakplötum á Hauganesi í Eyjafirði og var björgunarsveitin Baldur frá Árskógsströnd kölluð út vegna þess.