Flóttafólkið boðið velkomið á Akranesi

Palestínska flóttafólkið við komuna til Íslands
Palestínska flóttafólkið við komuna til Íslands mbl.is/Golli

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, bauð palestínska flóttafólkið sem kom hingað til lands fyrr í mánuðinum frá Al-Walleed flóttamannabúðunum í Írak, velkomið  í móttöku sem bæjarstjórn Akraness hélt þeim í dag.

Ráðherra sagði að hún dáðist að hugrekki og viljastyrk kvennanna sem hefðu þurft að mæta ótrúlegum erfiðleikum, ofbeldi og hættum undanfarin ár, búa við skelfilegar aðstæður í flóttamannabúðunum í Al-Walleed og síðan að skiljast við nána ættingja í búðunum til að flytjast til fjarlægs lands.

Ráðherra óskaði konunum og börnum þeirra gæfu og velfarnaðar í nýju landi. Hún sagði að flóttamönnum hefði almennt liðið mjög vel hér og orðið virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Ísland hefur tekið á móti flóttafólki í hópum allt frá árinu 1956 og á síðasta áratug hefur verið tekið á móti hópum nær árlega, að því er segir á vef félagsmálaráðuneytisins.

Fjölskyldurnar frá Al-Walleed komu til landsins fyrir rúmri viku. Þetta eru átta konur og 21 barn. Fyrstu dagana hafa þær nýtt til að koma sér fyrir í íbúðunum sem biðu þeirra fullbúnar við komuna til Akraness, átta sig á nánasta umhverfi og tengjast stuðningsfjölskyldunum sem leiðbeina þeim og liðsinna á ýmsa lund.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur yfirumsjón með móttöku flóttamannahópa og aðstoð og þjónustu við fólkið fyrsta árið en flóttamannanefnd sinnir framkvæmdinni í umboði stjórnvalda. Ráðherra þakkaði öllum þeim sem tekið hafa þátt í undirbúningi vegna komu flóttafólksins og sagðist sérstaklega ánægð með það góða samstarf sem fram færi milli flóttamannanefndar, Akranesbæjar og Rauða krossins, að því er segir á vef ráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert