HÍ fær 276 milljónir að gjöf

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands.

Stofnskrá nýs styrktarsjóðs við Háskóla Íslands verður undirrituð á morgun af stofnandanum Toshizo Watanabe og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor H. Í. Stofnframlag Watanabe til sjóðsins er þrjár milljónir Bandaríkjadala, eða um 276 milljónir íslenskra króna.

Samkvæmt upplýsingum frá HÍ er tilgangur Styrktarsjóðs Watanabe að veita styrki til skiptináms í Japan og á Íslandi, bæði nemendum í grunnnámi og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að skiptum á vísindamönnum. Styrkir sjóðsins geta náð til uppihalds, ferða og skólagjalda, en fyrsta úthlutun fer fram ekki síðar en einu ári frá stofnun sjóðsins.

Stjórn sjóðsins skipa þrír einstaklingar og er skipunartími stjórnar þrjú ár. Rektor skipar formann stjórnar og Toshizo Watanabe og Geir H. Haarde skipa einn stjórnarmann hvor.

Toshizo Watanabe nam við Brandeis háskólann í Waltham, Massachusetts í Bandaríkjunum og var skiptinemi í nemendaskiptakerfi sem kallast Wien International Scholarship Program. Þar hlaut hann BS-gráðu í stjórnmálafræði árið 1973. Watanabe brautskráðist síðan með MBA-gráðu frá Pepperdine háskólanum í Kaliforníu í Bandaríkjunum, árið 1992. Í framhaldinu varð hann stjórnarformaður, forstjóri og eigandi Nikken-fyrirtækisins sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Watanabe kynntist Íslandi á námsárum sínum í Bandaríkjunum en þar sat hann á skólabekk með Geir H. Haarde forsætisráðherra og tókst með þeim ágæt vinátta sem haldist hefur fram á þennan dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert