Trampólín og tré með frelsisþrá

Tólf trampólín fuku í óveðrinu á Akureyri.
Tólf trampólín fuku í óveðrinu á Akureyri. mbl.is/Skapti

„Það voru 12 trampólín hér á Akureyri sem fengu frelsisþrá í rokinu og ollu þau nokkrum skemmdum," sagði varðstjóri lögreglunnar á Akureyri og bætti því við að það væri 12 trampólínum of mikið. „Það má segja að það hafi fokið í okkur hér fyrir norðan."

Fyrir utan trampólínin voru nokkur tré sem fuku og var lögreglan að sinna óveðursmálum frá miðnætti og fram á hádegi í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert