Veður virðist vera að ganga niður á Akureyri samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar. Nokkuð var um fok á lausamunum í umdæmi Akureyrarlögreglunnar í nótt en hjálparbeiðnum hefur fækkað með morgninum. Þá segir lögregla að um minniháttar atvik hafi verið að ræða.