Jarðgöng undir Ölfusá

Bæjarstjórn Árborgar vill láta kanna kostnað og hagkvæmni þess að gera jarðgöng undir Ölfusá í stað brúar sem á að reisa þar vegna flutnings Suðurlandsvegar.

Suðurlandsvegurinn kemur til með að enda í þeirri mynd sem við þekkjum hann skammt austan við Biskipstungnabraut um tveimur kílómetrum frá Selfossi. Hann á að taka beygju í átt að Helliskógi, skógræktar og útivistarsvæði Selfoss. Í 30 ár hefur staðið til að láta brúna yfir ána liggja yfir eyju, í miðri ánni. Skógræktin hefur tekið mið af þessu skipulagi og ekki plantað trjám á fyrirhuguðu vegstæði. Nú vill Vegagerðin hinsvegar fara með veginn inn í miðja skógræktina, yfir gamlan hlaðinn vegg sem er á þjóðminjaskrá og reisa brúna þar sem er gamalt ferjustæði. Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri á Selfossi hefur ekki svarað erindinu en segist tilbúin að skoða það ef Vegagerðin lætur jafnframt skoða þann möguleika að setja jarðgöng í stað brúar. Hún segir að á svæðinu séu sögu og náttúruminjar sem séu bæjarbúum afar kærar og eðlilegt sé í ljósi tækni og framfara að skoða þann möguleika sem kalli á minnstar fórnir á landi.

 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert