Lögreglan á Borgarnesi mætti í nótt bíl á gatnamótum Skorradalsvegar og Borgarfjarðarbrautar og fannst aksturlagið eftirtektarvert. Er þeir byrjuðu svo að svipast um eftir bílnum var hann hvergi að sjá.
Nokkru síðar kom þó bíllinn í leitirnar og var hann þá utan vegar. Leikur grunur á að ökumaðurinn hafi haft í hyggju að fela sig fyrir laganna vörðum. Hann er sömuleiðis grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis.