Kveikt var í sex ára gamalli Isuzu Trooper jeppabifreið þar sem hún stóð á Grafningsvegi við Hagavík. Allt brann sem brunnið gat í bifreiðinni og málmurinn einn eftir. Bíllinn hafði staðið þarna tæpar tvær vikur með sprunginn hjólbarða.
Tilkynnt hafði verið um bílinn lögreglu nokkrum dögum áður en í henni kviknaði. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist aldrei til eiganda. Það er nokkuð ljóst að kveikt hefur verið í bifreiðinni.
Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið eða mannaferðir á þessum slóðum aðfaranótt síðastliðins fimmtudags að hafa samband í síma 480 1010.