Iðjujþálfar munu þessa vikuna heimsækja grunnskólabörn, vikta skólatöskur og bjóða upp á fræðslu um rétta notkun skólatöskunnar, en mikilvægt er að þyngd töskunnar sé í samræmi við líkamsburði hvers barns
Iðjuþjálfafélag Íslands stendur fyrir Skólatöskudögum í samstarfi við Lýðheilsustöð að bandarískri fyrirmynd og er yfirskrift átaksins „Létta leiðin er rétta leiðin.“ Þetta er þriðja árið sem félagið stendur fyrir þessum viðburði og segir í fréttatilkynningu að Skólatöskudagar spili stórt hlutverk í forvarnarvinnu með börnum, þar sem stoðkerfisvandamál aukast stöðugt meðal barna og ungmenna.
Um 50 íslenskir iðjuþjálfar, auk iðjuþjálfanema við Háskólann á Akureyri, munu heimsækja 40 grunnskóla víðsvegar um landið.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Iðjuþjálfafélagsins www.ii.is