Breska ríkisútvarpið BBC fjallar í dag um palestínsku flóttamennina, sem komu til Íslands fyrir skömmu. Rætt er m.a. við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, og Magnús Hafsteinsson, varaformann Frjálslynda flokksins, um mismunandi viðhorf til þeirra.
Jafnframt kemur fram, að viðbrögðin við komu flóttamannanna hafi verið svo jákvæð, að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sé að íhuga að „flytja út" íslensku áætlunina.