Konovalenko enn leitað

Erlend lögreglulið hafa enn ekki haft hendur í hári Ivans Konovalenko frá Litháen, sem eftirlýstur er af íslensku lögreglunni vegna hnífstunguárásar á Mánagötu fyrir hálfum mánuði. Ivan komst úr landi í gegnum Keflavíkurflugvöll en mistök hjá lögreglu urðu þess valdandi að ekki var tilkynnt til landamæraeftirlits að Konovalenko væri eftirlýstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert