Lenti heilu og höldnu

Horft yfir Keflavíkurflugvöll.
Horft yfir Keflavíkurflugvöll. mbl.is/ÞÖK

Lending Boeing 757 þotunnar sem ákveðið var að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna þess að rúða í vélinni var brotin, gekk að óskum, samkvæmt upplýsingum frá flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli.

Lenti þotan klukkan 14:55 en hún var að koma frá Gander flugvelli á Nýfundnalandi. Ekki er um íslenska vél að ræða.

Ekki var talið að sérstök hætta væri á ferðum en viðbúnaður var aukinn á flugvellinum til öryggis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert