Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumenn

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 16 ára pilt og 17 ára stúlku í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi hvort fyrir að ráðast á lögreglumenn í Reykjanesbæ á síðasta ári. 

Pilturinn skallaði lögreglumann á fangagangi lögreglustöðvarinnar í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn fékk áverka á höfði.

Stúlkan beit í handlegg lögreglukonu þegar verið var að flytja hana í lögreglubíl á stöð.

Bæði játuðu ungmennin brot sín. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert